Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin.

Faðir Önnu Margrétar starfaði í utanríkisþjónustunni og var sendiherra um tíma. Hún ólst að hluta til upp í Bretlandi og segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Íslands. Í þættinum tölum við um fatastíl og tísku, París og London, skinkuvæðinguna og mannasiði

Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind, Kringlunni og mathilda.is.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Marta María Winkel. Innehållet i podden är skapat av Marta María Winkel och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.