Við erum mætt til Akureyrar til þess að elta uppi pólitíska öskubuskusögu blikkara úr Þorpinu.


Manns sem þótti ekki nógu fínn fyrir Framsóknarflokkinn, en stofnaði í staðinn stjórnmálaflokk sem varð ekki bara ráðandi afl í bænum heldur er hann nú þriðja elsta stjórnmálaafl á Íslandi og hefur í bráðum tvo áratugi verið í meirihluta.


Við reynum að fá að vita hvort árangur L-listans sýni að það sé hvorki nauðsynlegt né árangursríkt að eiga stóran, sterkan frænda í Reykjavík, sem sækja þurfi til samþykki eða aðstoð.


Umsjón: Helgi Seljan

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV Hlaðvörp. Innehållet i podden är skapat av RÚV Hlaðvörp och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.