Fótboltamennirnir sem komu til Íslands frá gömlu Júgóslavíu árið 1992 og næstu ár á eftir voru flestir að flýja stríð sem geysuðu í heimalandi þeirra á meðan Júgóslavía var að liðast í sundur. Margir þeirra komu frá Bosníu, en í Bosníustríðinu sem hófst árið 1992 var gríðarlegt mannfall. Í þessum þætti er stríðið til umfjöllunar og Balkanbræður segja frá sinni upplifun af hörmungunum sem hefur markað þá fyrir lífstíð. Rætt er við Goran Kristófer Micic, Luka Lúkas Kostic, Val Ingimundarson, Izudin Daða Dervic, Ejub Purisevic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic og Salih Heimi Porca.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
RÚV Hlaðvörp. Innehållet i podden är skapat av RÚV Hlaðvörp och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.