Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík.

Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virkilega áhugavert og fræðandi samtal sem gaf okkur margt til að hugsa um fyrir unglingsárin.

Það er svo mikilvægt að hlúa vel að þessum hópi og tryggja að honum standi til boða faglegt og uppbyggjandi starf í frístunda- og tómstundamálum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Bíddu bara. Innehållet i podden är skapat av Bíddu bara och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.