Gervigreind
Avsnitt

#19 - Fréttaþáttur: Mythos, Hermes og reikniaflsstríðið

Dela

Mythos finnur zero-day veikleika, Hermes tekur við af OpenClaw og reikniaflsstríðið er komið í alvöru gír.


Apríl var mánuðurinn þar sem áherslan færðist endanlega frá líkönunum yfir á það sem er í kringum þau, og þar sem reikniaflsstríðið milli stóru fyrirtækjanna varð raunverulegt.


Í þættinum er farið yfir:


Erindrekarnir á fararbroddi: Hermes, OpenClaw, „skills" og hvernig þú gefur erindreka raunverulegt minni.


Claude Code-lekinn: hvað gerist þegar fyrirtæki missir kóðann sinn, og af hverju brand-ið skiptir kannski meira máli en uppskriftin.


AI-þreyta og tókakvíði: hvað gerist í höfðinu á þér þegar þú heldur fjórum (eða fimmtíu) erindrekum gangandi samtímis.


Líkön og reikniaflsstríðið: Mythos finnur zero-day veikleika, Anthropic ræður ekki við eftirspurn og Google fjárfestir tíu milljarða dollara í Anthropic.


Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.


Ef þú vilt aðstoð frá Javelin við verkefni sem tengjast gervigreind, hafðu endilega samband:

https://javelin.is/is/contact

javelin@javelin.is


Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Javelin AI. Innehållet i podden är skapat av Javelin AI och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.