Í fyrsta hluta viðtalsins förum við yfir æviferil félagsfræðingsins og heimspekingsins Jóhanns Páls Árnasonar. Við ræðum æskuárin á Dalvík á fimmta og sjötta áratugnum, mótunarárin þegar hann fór sem ungur róttæklingur austur til Tékkóslóvakíu á tímum lýðræðislegra umbótatilrauna sem kallaðar voru Vorið í Prag. Við ræðum námið við hinn þekkta Frankfúrt-skóla þar sem Jóhann skrifaði doktorsverkefni hjá þýska heimspekingnum Jürgen Habermas og svo vegferð hans til Ástralíu þar sem hann starfaði sem prófessor í rúma þrjá áratugi.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
RÚV Hlaðvörp. Innehållet i podden är skapat av RÚV Hlaðvörp och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.