Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins skoðum við nokkur dæmi um afleiðingar dóms og laga í fornleifum. Hvað skilur útilegumannahelli frá öðrum hellum? Hvað voru margir teknir af lífi á Íslandi og fyrir hvað? Og hvað í andskotanum var Erfðahyllingin? Arthur segir frá sniðugum útlaga í Eldvörpum og Snædís fjallar um 18. aldar morðmál sem tengist bæði Árbæjarsafni og Kópavogslæk. Útilegumenn, afturgöngur, sifjaspell og aftökur - hvað er hægt að biðja um meira?

Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði

Þetta er síðasti þáttur Moldvarpsins í bili. Við þökkum fyrir samfylgdina - þangað til næst!

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Moldvarpið. Innehållet i podden är skapat av Moldvarpið och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.