Skotinn David Winnie var hér á Íslandi um fjögurra ára skeið frá 1998 til 2001 er hann lék með og þjálfaði svo karlalið KR í fótbolta. Hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótið árið 1998 og hjálpaði KR svo að enda 30 ára bið eftir Íslandsmeistaratitli er liðið varð tvöfaldur Íslandsmeistari á 100 ára afmælisárinu 1999.
Hann á íslenska konu og kemur reglulega hingað til lands með tvo henni og tveimur sonum þeirra, þar sem þau eiga hér sumarbústað. KR taugin er til staðar og hann hefur fylgst með þeim svarthvítu síðan hann hætti og reynir iðulega að mæta á leik þegar hann er á klakanum.
Við ræddum við Winnie um KR, gamla tíma og einnig feril hans í dag en hann starfar sem íþróttalögfræðingur á Bretlandi og var meðal annars dómari í svokölluðu Spygate máli Southampton.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
bestasaetid. Innehållet i podden är skapat av bestasaetid och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.