Skipulagsmál, leikskólar, hitaveita og uppbygging samfélagsins eru meðal helstu umræðuefna í Dalvíkurbyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Fjögur framboð bjóða nú fram í sveitarfélaginu, í fyrsta sinn í langan tíma.

Síðast buðu þrír listar fram. K-listi Dalvíkurbyggðar fékk þá þrjá fulltrúa, D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra tvo og B-listi Framsóknar og félagshyggjufólks tvo. K-listi og D-listi hafa myndað meirihluta á kjörtímabilinu.

Nú bætist A-listi Byggðalistans við, undir forystu Barkar Þórs Ottóssonar. Helgi Einarsson leiðir K-listann, Benedikt Snær Magnússon D-lista Sjálfstæðisflokks og Monika Margrét Stefánsdóttir B-lista Framsóknarflokks.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.