Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mælum við með að kynna sér haustdagskrá Útihreyfingarinnar.Við þökkum Peloton fyrir gott samstarf og hvetjum ykkur til að kíkja á þangað, þessa dagana er 30% afsláttur af fatnaði og því hægt að gera kjarakaup.
Fyrir þau sem ætla skella sér í sjóinn er síðan um að gera að kíkja á Villimanninn þar sem er allskyns sjó- og vatnadót til sölu.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Innehållet i podden är skapat av Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.