Viðmælandi vikunnar er Arna Barkar, þriggja barna móðir og meðeigandi heildsölunnar Cosmetics.Í þessum þætti ræðum við uppvaxtarárin, meðgöngurnar og ólíkar fæðingar barnanna þriggja. Arna segir okkur á mjög einlægan og kraftmikinn hátt frá þeim gríðarlega stóru áskorunum sem fjölskyldan stóð frammi fyrir þegar hún greindist með brjóstakrabbamein á sama tíma og móðir hennar var með lungnakrabbamein. Við viljum vekja athygli á Bleikum október og hvetja ykkur til að kynna ykkur þau málefni og samtök sem styðja við bakið á konum sem greinst hafa með krabbamein <3
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Undirmannaðar. Innehållet i podden är skapat av Undirmannaðar och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.