Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. 

Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og átökum.


Hlustaðu einnig á viðtalið sem Erla tók við Viðar í júlí 2024. Félagslegir töfrar. (Tilfinningaleg smitun, félagslegt heilbrigði, stemmning og hlutverk íþrótta). Viðar Halldórsson.

Þar ræða Erla og Viðar um hvernig tæki og tól hafa aukið samskipti við fjærsamfélagið en gallinn er að þau hafa takmarkanir og minnka mannleg tengsl. Snjalltæki soga mennskuna úr og eftir stendur bara það sem er skrifað. Það er ekki bara það sem við segjum (eða skrifum) heldur þetta ósýnilega, líkamstjáning, raddblær ofl sem skiptir svo miklu máli. Við erum ekki eins meðvituð um nærumhverfi okkar og þá tapast augnsamband ofl. 

Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör HeilsuErla. Innehållet i podden är skapat av HeilsuErla och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.