Miðvikudagur 24. júní
Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur
Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunnar Smára um niðurskurð. Lárus Ýmir Óskarsson velti því fyrir sér í spjalli með Birni Þorláks hvort auðræði sé að granda heiminum. Alþýðusönglist og hvernig sá siður hefur haldist víða að syngja í röddum og miðla milli kynslóða verður til umræðu hjá Margréti Bóasdóttur söngkonu og kórstjórnanda og Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og kórstjórnanda. Gildi kórastarfs verður til umræðu.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Samstöðin. Innehållet i podden är skapat av Samstöðin och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.