Umfjöllunarefnið að þessu sinni er Lúðurinn & ÍMARK dagurinn - uppskeruhátíð markaðsfólks á Íslandi sem haldin var þann 1. mars 2024 í Háskólabíó.
Þeir Ómar Þór og Andri Már draga andann djúpt og kafa ofan í þetta helsta:
Áhugaverðustu molana úr fyrirlestrum dagsins
Árangursríkustu herferð ársins
Rjúkandi heitar niðurstöður úr markaðskönnun Maskínu
Valið á markaðsfyrirtæki ársins
Hvaða auglýsingar báru sigur úr býtum á Lúðrinum
UM HLAÐVARPIÐ Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketing https://www.instagram.com/digidomarketing https://www.facebook.com/digidomarketing
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Digido. Innehållet i podden är skapat av Digido och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.