Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá en að markaðurinn hafi litið það svo jákvæðum augum að allt sem á undan var nefnt hafi verið léttvægt fundið af fjárfestum.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Myntkaup. Innehållet i podden är skapat av Myntkaup och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.