Cheryl Smith hefur starfað með leiðtogateymum í yfir 15 löndum í fimm heimsálfum. Hún er frumkvöðull á sviði markþjálfunar og hefur vottað vel á þriðja hundrað íslenskra markþjálfa við HR í um 40 heimsóknum til Íslands. Hún er einn af 50 fyrstu markþjálfum til að öðlast MCC viðurkenningu ICF (International Coach Federation). Cheryl starfað við markaðssetningu og stjórnun hjá IBM og vann hörðum höndum við að markaðsetja og selja fyrstu PC tölvurnar. Hún hefur þróað og þjálfað á stjórnendanámskeiðum um árabil og nýtir víðtæka reynslu úr viðskiptalífi, háskólastarfi, ferðalögum og samtölum við fólk um allan heim. Cheryl er með meistaragráðu í stjórnun og þjálfun (e. Leadership and Training) frá Royal Roads háskólanum í Victoria, Kanada. Hún er jafnframt kennari við háskólann. Cheryl var aðstoðarforstjóri hjá Corporate Coach U og stofnaði Leadscape Learning Inc.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Guðrún Högnadóttir. Innehållet i podden är skapat av Guðrún Högnadóttir och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.