Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Við förum yfir Rock Star brjálæðið í Eftirmálum og ræðum bæði við Magna sjálfan og Magnús Ragnarsson, manninn á bak við þetta ævintýri.