Konur í tækni
Avsnitt

29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans

Dela

Gestur okkar í þessum fyrsta þætti vetrarins er Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans. Valeria er reynslumikill stjórnandi í upplýsingatæknigeiranum með víðtæka starfsreynslu úr mismunandi atvinnugreinum. Áður en hún tók við núverandi starfi vann hún hjá fyrirtækjum eins og QuizUp, Nova, Icelandair og Advania. Hún er með BS gráðu í verkfræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík ásamt diploma í verkefnastjórnun. Valeria situr auk þess í stjórn SVEF og sinnir kennslu í HR.


Í þættinum ræða Hildur og Valeria meðal annars:

  • Æskuárin og flutninginn frá Sovétríkjunum til Seltjarnarness
  • Menntaskólaárin og lífsbaráttuna sem tók yfirhöndina
  • Frumgreinadeild í HR (nú Háskólagrunnur), þar sem hún fann áhugann sinn og lauk verkfræðinámi
  • Skemmtilega reynslu hjá Nova á fyrstu árum fyrirtækisins
  • Ævintýralegan vöxt QuizUp og lærdóminn sem hún og aðrir fengu
  • Þátttökuna í uppbyggingu Digital Labs hjá Icelandair
  • Árangursríkar breytingar hjá Advania og hvernig þær þróuðust
  • Hvernig markþjálfunarnámið hefur nýst henni bæði sem stjórnanda og í eigin lífi
  • Kennsluna í HR þar sem hún tengir saman tæknigeirann og viðskiptafræði
  • Hversu nærandi það er að fara í göngutúra með hundinn í náttúrunni

Í þættinum minnist Valeria á tvær bækur:

The Wisedom of the Bullfrog: Leadership Made Simple (But Not Easy) eftir Admiral William H. McRaven

You Do You: How to Be Who You Are to Get What You Want eftir Sarah Knight

---------------------------------------------------------------------------------------------------------

Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?

Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:

LinkedIn

Facebook

Instagram

---------------------------------------------------------------------------------------------------------

Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir

Styrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi. Innehållet i podden är skapat av Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.