Guðlaugur, Hildur Björk og Maja ræða móttöku fósturbarna en staðreyndin er sú að ekkert fósturbarn kemur án einhvers konars áfalls í fóstur.
Hvernig fæðist fósturbarn á heimili? Hvernig er aðlögunin? Það eru ótal mörg horn að líta í þegar barn er tekið í fóstur og margt sem erfitt er að tímasetja eða skipuleggja fyrirfram. Í þættinum ræða þau t.d. þá staðreynd að ekki er fæðingarorlof fyrir fósturforeldra en hvernig er þá aðlögunarferlið?
Einnig ræða þau hvað barnið kemur með á nýja heimilið og hvað þarf að útvega. Hvernig er með skóla, leikskóla og heilsugæslu? Hvað þarf að útvega barni og hvað með ef það eru önnur börn á heimilinu fyrir komu fósturbarnsins?
Samtal þáttarins varpar ljósi á aðstæður fósturbarna og fósturforeldra; málefni sem eiga það til að vera falin í okkar samfélagi.
Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Félag fósturforeldra. Innehållet i podden är skapat av Félag fósturforeldra och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.