Stiffarinn er sannlega engin tímamótaplata og það kann að vera að gripurinn sem slíkur hafi farið fyrir ofan garð og neðan hjá flestum hlustendum hlaðvarpsins. Titillagið náði til fjöldans, eftirminnilega, en svo virðist platan hafa horfið eins og dögg fyrir sóló á Íslandi að minnsta kosti. Af hverju ætli það sé? Er Stiff Upper Lip svo veikburða og gleymanleg að það „réttlæti“ að svona fá vísi til hennar? Smári Tarfur og Birkir Fjalar einhenda sér að komast að hinu sanna.
Sérstakir gestir þáttarins eru Erla Stefánsdóttir, alt muligt tónlistar- og söngkona og söngkenknari (Grúska Babúska, Dali, Vague Mother o.fl.) ásamt Hauki Viðari Alfreðssyni , hlaðvarpsmeistara (Besta Platan, Dómsdagur o.fl.) og tónlistarmanni (Morðingjarnir, Vígspá, Helvar o.s.frv.).
Alltaf sama platan er í boði Matarbúðarinnar Nándin, Hafnarfirði og Keflavík. www.matarbudin.is Þátturinn er studdur af Luxor: Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. www.luxor.is
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson. Innehållet i podden är skapat av Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.