Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi ráðgjafanum Kjartani Ottósyni. Hildur Vala hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið síðan hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2019 og hefur leikið í hinum ýmsu sýningum á vegum hússins og má þar meðal annars nefna Ronju Ræningjadóttur og mun hún fara með hlutverk Elsu í uppfærsu leikhússins á Frost sem frumsýnt verður í mars. Kjartan er menntaður lögfræðingur og flugmaður en starfar hann þessa stundina við fyrirtæjaráðgjöf hjá KPMG. Kjartan og Hildur höfðu í gegnum tíðina oft verið á sama tíma á sama stað en þó aldrei leitt hugi saman fyrr en eitt örlagaríkt kvöld í starfsmannapartýi hjá Iceland air, en þar mættust þau á dansgólfinu og hafa í raun verið saman allar götur síðan þá og eiga í dag saman tvær dætur. Í þættinum ræddum við meðal annars um leiklistina og hvernig það er að starfa í Þjóðleikhúsinu, fjölskyldulífið, rómantýkina, húmorinn, tónlistina, deitkvöld og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars af hörðu pringles sem Hildur borðaði sem reyndist síðan vera eitthvað allt annað.