Vorar skuldir er nýtt útvarpsleikrit eftir leikhópinn Kriðpleir. Félagarnir Friðgeir, Árni og Ragnar fá einstakt tækifæri þegar þeim býðst að taka yfir heimasölu á húðvörum. Nú er bara að koma kremunum aftur í verð áður en þau skemmast og rétta við fjárhaginn í eitt skipti fyrir öll. Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis?

Leikarar: Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Hjörtur Jóhann Jónsson, Ylfa Ösp Áskelsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ásthildur Sigurðardóttir og Þorsteinn Bachmann.

Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson.

Höfundar og leikstjórar: Bjarni Jónsson, Árni Vilhjálmsson, Ragnar Ísleifur Bragason og Friðgeir Einarsson (Leikhópurinn Kriðpleir).

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.