Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn
Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og fékk óvænta gistingu. Baldur hringir í gerfigreindina og fær hana til að skipuleggja fyrir sig sólóferð til Danmerkur, Einar útskýrir af hverju Jón Gnarr er í raun og veru svona flughræddur.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason. Innehållet i podden är skapat av Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.