Ég kynntist Hilmari Friðjónssyni í námskeiðinu Framhaldsskólakennarinn á krossgötum sem Menntavísindasvið HÍ stóð fyrir. Eldmóður Hilmars er augljós og metnaður hans smitandi. Ég vildi því setjast niður með honum og spjalla um hans nálgun og gildi í kennslu og reynslu hans af neyðarfjarkennslu á tímum heimsfaraldurs. Hilmar fjallar einnig um mikilvægi þess að samskipti kennara við nemendur séu byggt á jákvæðni og að umhverfi kennarans sé hvetjandi og dynamískt. Það sé leiðin til að virkja kennarann og búa til gott og uppbyggjandi starfsumhverfi.
Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.
Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Þorsteinn Sürmeli. Innehållet i podden är skapat av Þorsteinn Sürmeli och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.