FLANERÍ
Avsnitt

Flanerí RVK #1: Ættarmót í Grasagarðinum

Dela

Gengið er frá listaverkinu Fyssu við innganginn að grasagarðinum, í hring framhjá Café Flórunni og milli fjölæringa.

• Lengd 27 mínútur • Gangan hentar öllum aldurshópum

Við líðum um og inn á milli gersema Grasagarðsins, lítum upp í trjákrónur og skyggnumst undir yfirborðið.  Árstíðirnar taka hver við af annarri í hringrás lífsins og alltaf er eitthvað nýtt og fallegt að sjá.

Hlustendur upplifa persónulegan hljóðheim sem varpar nýju ljósi á það umhverfi sem gengið er í. Frásagnir, viðtöl og lýsingar sveipa Grasagarðinn nýjum blæ og fara með hlustendur í ferðalag á kunnulegar en jafnframt framandi slóðir.

Kort af göngunni má nálgast á flaneri.is

Flanerí RVK er styrkt af Borgarsjóði Reykjavíkur.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Flanerí. Innehållet i podden är skapat av Flanerí och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.