Firmað ritar
Avsnitt

Made in America - Hvernig Walmart, stærsta fyrirtæki í heimi varð til

Dela

Made in America er sjálfsævisaga Sam Walton stofnanda Walmart. Hann skrifaði bókina á dánarbeðinu 1992 en í þessari einlægu frásögn fer hann yfir það hvernig hann fór frá því að eiga ekki neitt í að byggja upp það sem er í dags stærsta fyrirtæki í heimi með $540 milljarða veltu.
Ef þú hefur áhuga á sögu verslunar í heiminum, ert að leita að innblæstri, vilt læra af mistökum annarra og fræðast um einn merkasta frumkvöðul síðari tíma þá er þetta bók fyrir þig.

Bókina er hægt að nálgast á Amazon.
Hana er hægt að fá sem hljóðbók á Audible 

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Satriali's Pork Store. Innehållet i podden är skapat av Satriali's Pork Store och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.