Eyvör – stærsta framfaraskref netöryggis og eru yfirvöld að bregða fæti fyrir nýsköpun með höfnun 60% umsókna um endurgreiðslu þróunarkostnaðar?
32. þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.1 – vonum að bottinn nái að læra stafsetningu fyrir næsta þátt).
Theodór Ragnar Gíslason eða Teddi mætir í settið hjá Sverri Geirdal, nú ráðgjafa hjá Hinos ehf., og ræðir allskonar um net og tölvuöryggi.
Defend Iceland – hvað er það? Lýðvirkja? Og hvað þýðir Villuveiðigátt?
Defend Iceland er nýbúið að fá Nýsköpunarstyrk frá Digital Europe og Rannís en var hafnað um endurgreiðslu þróunarkostnaðar vegna þess að þau eru ekki í Nýsköpun… (There is something rotten in the state of Ice…)
Ræðum um Eyvöru, sem Teddi kallar mesta framfaraskref á sviði netöryggis í seinni tíð. Hvernig getur samfélagið nýtt sér styrki sem þar fást?
Hvernig eigum við venjulega fólkið að haga okkur við verslun á netinu, sem er aldeilis aktuelt efni núna í Svörtum Nóvember, þegar 11.11 er nýliðinn og 28.11 (svartur fössari) er handan við hornið.
Ræðum um viðburði framundan á vegum stuðningsaðila Auðvarpsins;
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Sverrir Geirdal. Innehållet i podden är skapat av Sverrir Geirdal och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.