Bréfið sem leiddi til byltingar eftir Önnu Agnarsdóttur fjallar um hinn stutta en ævintýralega valdatíma Jörundar hundadagakonungs á Íslandi, allt frá því að dramatískt bréf Magnúsar Stephensen dómstjóra til Sir Joseph Banks hrinti atburðarásinni af stað árið 1807. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Önnu um bókina, sem er hluti af Seríu Sögufélags.

Kaldastríðsborg eftir Rósu Magnúsdóttur hefst á sögulegum leiðtogafundi Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjov í Reykjavík haustið 1986. Bókin kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundarins og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda menningarstríðsins svokallaða, áróðursstríðs austurs og vesturs. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Rósu um bókina, sem er hluti af Seríu Sögufélags.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Sögufélag. Innehållet i podden är skapat av Sögufélag och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.