#172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson
Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson forstjóra. Farið er yfir afmælisfagnaðinn og rætt um ýmis atriði í langri sögu gæslunnar og einkum þær breytingar sem hafa orðið á þeim rúmlega tveimur áratugum sem Georg hefur setið í stóli forstjóra. Fjallað er um öryggis- og varnarmálin sem forstjórinn segir að falli vel að hlutverki og starfsemi Landhelgisgæslunnar. Hins vegar vanti að skilgreina hlutverk LHG betur í þeim málum og til lengri tíma. Sérstaklega er fjallað um flugdeild gæslunnar og hvernig sá þáttur hefur breyst á undanförnum árum og áratugum og hvernig tækninýjungar eins og drónar og ómönnuð loftför geta mögulega gjöbreytt því hvernig eftirliti er háttað.
Georg segir líka stuttlega frá sínum bakgrunni, mótunarárunum í Holti í Önundarfirði og það hvernig tilviljun olli því að hann skráði sig í lagadeild Háskóla Íslands.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Jóhannes Bjarni Guðmundsson. Innehållet i podden är skapat av Jóhannes Bjarni Guðmundsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.