Elfar Logi Hannesson, leikari, rekur Kómedíuleikhúsið í Haukadal, ásamt Marsibil G. Kristjánsdóttur, listakonu, en þau eru einnig hjón. Elfar og Pétur Magnússon ræða leikhúsið, Act Alone, dýrfirskar draugasögur og nýlega endurvakið félag vestfirskra listamanna.
En sá félagsskapur fer stækkandi.
Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, rekur upphafið að ferli Stevens Spielberg, en saga hans er samofin sögu Hollywood.
Og svo hlustum við á tónlist sem fær fólk til að dansa. Dagmar Lilja Stefánsdóttir, nemi í versló og dansari, fer um bæinn og spyr fólk þessarar einföldu spurningar: Hvaða lag fær þig til að dansa?