Þriðjudagur 20. október
Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók
Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og sanngirnisbætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Ásta Lóa Þórhallsdóttir þingkona ræðir við Sigurjón Magnús um svínarí við nauðungarsölur og frumvarp sitt til úrbóta. Hjúkrunarheimili ættu sem endastöð að taka mjög vel á móti fólki en því miður skortir töluvert upp á það. Þetta segir Árni Kjartansson aðstandandi sem ræðir við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík um þriðja æviskeiðið. Katla Þórudóttir Njálsdóttir höfundur og leikari, Aron Már Ólafsson leikari og Killian G.E. Briansson leikstjóri ræða við Gunnar Smára um Gunnellu sem þráir að ættleiða barn. Sigmundur Ernir Rúnarsson sendir frá sér nýja bók sem kallast Barnabók. Hann segir Birni Þorláks frá lífinu á Akureyri fyrr á tímum.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Gunnar Smári Egilsson. Innehållet i podden är skapat av Gunnar Smári Egilsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.