Til að rjúfa þögnina og brjóta mynstrið er fyrsta skrefið að segja frá. Að þora að segja söguna. Leikhópurinn RaTaTam kynnir til sögunnar útvarpsverkið SUSS! sem byggir á samnefndu sviðsverki en það er unnið upp úr viðtölum við gerendur og þolendur í heimilisofbeldismálum. Höfundar: Halldóra Rut Baldursdóttir og Guðmundur Ingi Þorvaldsson ásamt RaTaTam. Leikhópurinn RaTaTam: Albert Halldórsson, Guðrún Bjarnadóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Halldóra Rut Baldursdóttir, Hildur Magnúsdóttir, Charlotte Bøving, Stefán Ingvar Vigfússon, Helgi Svavar Helgason, Þórunn María Jónsdóttir, Laufey Elíasdóttir.
Viðmælendur í þættinum: Andrés Ragnarsson, Arnar Pétursson, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Hrönn Stefánsdóttir , Jón Magnús Kristjánsson, Magga Stína, Kristín I Pálsdóttir og Ragna Björg Guðbrandsdóttir.
Ratatam er hluti af evrópska verkenfinu Shaking the Walls sem styrkt er af Creative Europe. Leiksýningin SUSS! Eftir Ratatam er á leið til Póllands og Tékklands árið 2020 sem hluti af því verkefni.