Heimsglugginn
Avsnitt

Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin

Dela

Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið.

Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 166 milljónir króna. Hjónabandi Murrells og Sturgeon er lokið og hún kveðst ekki hafa vitað um fjárdrátt eiginmannsins og rannsókn hafi leitt í ljós sakleysi hennar.

Í Svíþjóð hefur stjórnarandstaðan tæplega 10 prósentustiga forskot á stjórnarflokkana en kosið verður til þings 13. september. 53,9 prósent segjast styðja stjórnarandstöðuflokka í nýrri könnun, 44,2 prósent kveðast ætla að kjósa einhvern stjórnarflokkanna.

Í lokin var rætt um stöðuna í átökum Bandaríkjanna og Írans og möguleika á friðarsamningum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.