Von Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndum
Í þessum þætti ræða Barbara og Baldur, stjórnendur hlaðvarpsins Von ráðgjöf um fjölbreyttar tegundir framhjáhalds í parsamböndum sbr., líkamlegt, tilfinningalegt og andlegt framhjáhald. Hvernig getum við greint þessi form framhjáhalds, og hvaða áhrif hafa þau á parsambandið? Hlustendur fá innsýn í hvernig tilfinningalegt framhjáhald, sem oft byrjar sem saklaus vinátta, getur vaxið í eitthvað miklu dýpra. Sérstaklega áhugavert er hvernig klámnotkun getur skapað tilfinningalega fjarlægð og orðið form af tilfinningalegu og andlegu framhjáhaldi, í þættinum skoða B&B líka hvernig andlegt framhjáhald – þegar einhver verður hugfangin af hugsunum/fantasíum sínum – getur valdið sundrungu í samböndum.
Í þættinum verður einnig rýnt í hvernig sambönd geta náð bata eftir framhjáhald og hvernig pör geta unnið saman að því að endurheimta traust og tengsl. Hlustið á þáttinn og fáið innsýn inn í hvort og þá hvernig meðferð getur hjálpað pörum að takast á við þessa erfiðu reynslu.
Lykilorð:
• Framhjáhald í samböndum • Líkamlegt framhjáhald • Tilfinningalegt framhjáhald • Klám og svik • Andlegt framhjáhald • Traust og nánd • Sambandsráðgjöf
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Von ráðgjöf - Lausnin hlaðvarp. Innehållet i podden är skapat av Von ráðgjöf - Lausnin hlaðvarp och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.