Kona á samtal við konu um hvernig á að koma á nýjum svefnvenjum og eignast kvöldin sín aftur; fyrir raunveruleikaþætti, prjónaskap eða að stara út í loftið eða í augu makans. Skiptir ekki öllu máli fyrir hvað, en meira máli skiptir að trúa því að það er hægt! Í þetta sinn voru það vinkonurnar Birna Almarsdóttir og Guðrún Inga Torfadóttir sem rifjuðu upp hvernig gekk að gera stórar breytingar með litlu samtali á tilhögun háttatímans hjá einni frábærri stelpu sem nú arkar almennt betur sofin út í dagana sína eftir breytingarnar. Vonandi hjálpar þessi litla umfjöllun þér að taka á einhverju sem þarf e.t.v. að breyta eða hnika til í svefnuppeldinu á þínu barni. Ef ekki, þá má benda á stóra þáttinn, nr. 50 í Virðingu í uppeldi sem fer mun nánar ofan í svefnsálmana.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
medvitadirforeldrar. Innehållet i podden är skapat av medvitadirforeldrar och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.