Glasgow, mars 1857. Hinn 28 ára gamli Pierre Émile L’Angelier snýr óvænt aftur til borgarinnar eftir að hafa fengið bréf frá 21 árs gamalli Madeleine Hamilton Smith, konu sem hann hafði átt í leynilegu ástarsambandi við í tæp tvö ár.
Að morgni 23. mars 1857 er Pierre látinn. Það sem kemur í ljós næstu daga breytir skyndidauða hans í eitt umtalaðasta sakamál Viktoríutímans. Hundruð ástarbréfa, leynileg trúlofun, arsenik og samband sem mátti aldrei komast upp.
Í þættinum förum við aftur til Glasgow árið 1857 og skoðum ráðgátuna um Madeleine Smith og Pierre Émile L’Angelier — mál sem enn, tæpum 170 árum síðar, skilur eftir eina stóra spurningu: Hvað gerðist í raun síðustu nóttina sem Pierre lifði?
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 400+ aukaþáttum og nýja þætti alla Fimmtudaga.
Áskriftin kostar 1299,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Inga Kristjáns. Innehållet i podden är skapat av Inga Kristjáns och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.