Börn tímans - samtal við listamann á heimavelli
Önnur sería - 4. þáttur af fjórum
Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana.
Barn tímans að þessu sinni er leikkonan Arndís Hrönn Egilsdóttir.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Tónlistin í þættinum er eftir Eric Satie.