Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta félagsskiptaglugganum í Evrópu? Þórsarar náðu 50% árangri í Eyjum um helgina en það var nóg að gera hjá dómaraparinu. Stjarnan er að koma öllum á óvart í upphafi tímabilsins. Hafdís mætti aftur í markið hjá Val og lokaði búrinu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins. Rss Apple Podcaster →