PartyZone: Undir Diskókúlunni um Verslunarmannahelgina er í "extended" útgáfu enda viljum við bomba á ykkur hverjum nostalgíu dansslagaranum á fætur öðrum.

Diskókþrenna með Sylvester, Frímínútur með dansslögurum sem spanna að þessu sinni tímabilið 1984 - 2006. Dansárið sem við gefum svo sérstakan gaum er árið 1998. Plötusnúður kvöldsins er síðan enginn annar en Benni B-ruff sem tekur hiphop sett eins og við séum á Prikinu í kringum aldamótin.

Margt fleira fær að heyrast en aðallega bara tónlist sem fólk hefur tryllst við undir diskókúlunni í gegnum árin.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör oli.is - fyrir PartyZone 2001 - 2026. Innehållet i podden är skapat av oli.is - fyrir PartyZone 2001 - 2026 och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.