Karfan
Avsnitt

Aukasendingin: Grindavík og Njarðvík fagna, Pargo sturlaður og Baldur í Forsetahöllina

Dela

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið og er óhætt að segja að nóg sé um að vera. Stjórnandi þáttarins Davíð Eldur fékk góða gesti í stúdíóið að þessu sinni, þá Jónfrí og Strikerinn Árna Jó. Helstu umræðuefni þáttarins eru nýkrýndir Íslandsmeistaratitlar Njarðvíkur og Grindavíkur, ásamt því að farið er yfir helstu fréttir vikunnar og rýnt í önnur hlaðvörp sem tengjast íþróttinni. Þá var einnig vikið að sveitastjórnarkosningunum og áhrifum þeirra, sem og ráðningu Baldurs sem nýs þjálfara á Álftanesi, sem hefur vakið mikla athygli. Þá er einnig spáð í spilin með hver muni taka við af honum sem þjálfari Stjörnunnar.

Sérstök athygli er vakin á sturlaðri frammistöðu Jeremy Pargo fyrir Grindavík, en leikmaðurinn hefur verið stórkostlegur að undanförnu og heillað alla upp úr skónum. Gestirnir létu sig heldur ekki vanta í að kryfja nýjasta slúðrið úr boltanum og margt fleira sem er að gerast á bak við tjöldin.

Aukasendingin er aðgengileg á rás Körfunnar á öllum hlaðvarpsveitum.


Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Hér heimsækir þú Körfuna



Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Karfan. Innehållet i podden är skapat av Karfan och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.