Grein sem Dario Amodei forstjóri og einn af stofnendum bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic birti á vef sínum á laugardag hefur vakið gríðarlega athygli. Í greinni kallaði Amodei eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar og nauðsynlegt væri að fyrirtæki og stjórnvöld kæmu sér saman um ákveðnar takmarkanir og öryggiskröfur.

Donald Trump hefur enn áhuga á Grænlandi, segir rannsóknarblaðamaðurinn Ben Taub. Rannsóknir hans leiddu í ljós að þrír aðskildir hópar á sporbraut um Trump unnu á endanum saman að því að reyna að ná yfirráðum á Grænlandi.

Landakort sýna á flötu blaði jörð sem er kúlulaga. Þau kort sem nú eru algengust eru sprottin af sýn sem varð til á tímum landvinninga og nýlendna. Landakort hafa löngum verið notuð í áróðursskyni, segir Karl Benediktsson prófessor í landfræði við Háskóla Íslands.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.