Svava Bjarnadóttir sagði upp vinnunni sinni sem sjúkraliði á geðsviði og opnaði lítinn stað þar sem allt sem viðkemur mannlegri sjálfsrækt er í fyrirrúmi. Hún er sjálf með ýmis námskeið og er nýbúin að kaupa slatta af hengirúmum sem hún notar í hugleiðslur og og stundir fyrir hópa sem vilja slaka á og njóta. Staðurinn er í Hveragerði og við hittum Svövu þar, en hún er andlegur einkaþjálfari, reikimeistari og geðsjúkraliði.

Og við stöldruðum lengur í Hveragerði en það eru merk tímamót þegar bæjarfélag fagnar 80 ára afmæli og Hveragerði fagnar einmitt slíku afmæli allt þetta ár og dagskráin er glæsileg. Við hittum menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa bæjarins, Sigríði Hjálmarsdóttur, en hún hóf störf fyrir þremur árum og á þeim tíma hafa þrír bæjarstjórar vermt bæjarstjórastólinn.

Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Ragnar Bjarnason, eða okkar eina sanna Ragga Bjarna, sem var auðvitað einn ástsælasti dægurlagasöngvari íslenskrar tónlistarsögu.

Tónlistin í þættinum:

Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Micheal Legrand, texti Hjördís Morthens) Hveragerði / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson) Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.