Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð.

Einnig kynntu þeir félagar gjafaleik sem þeir eru með í gangi og hlustendur geta tekið þátt í á Instagram. Til mikils að vinna en vinningar að þessu sinni eru 15.000 kr gjafabréf á Matarkjallarann, 2 miðar á Improv Ísland, 2 rútur af Thule, fæðubótarefni frá Ingling og gjafabréf í partípílu á Bullseye.

Fresturinn til að gera breytingar rennur út föstudaginn 23. október kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich - Nottingham Forest kl 19:00 sama dag.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Fotbolti.net. Innehållet i podden är skapat av Fotbolti.net och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.