Bubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag.

Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg – hann er alltaf þarna- eins og Esjan.

Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum – alveg eins og hann hefur skoðun á öllu.

Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær: "Tónlistina þarf ekkert að ræða. Hún er fyrir löngu handan þess að vera góð eða slæm – við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumarsólin, óaðskiljanlegur hluti af tilverunni hér".

Rokkland vikunnar er þannig að samferðafólk Bubba – gamlir samstarfsfélagar og nýjir, og vinir eins og Guðmundur Pétursson, Jakob Smári Magnússon, Jón Óskar, Elín Hall, Ragga Gröndal, Ólafur Egill og Esther Talía, Þorleifur Guðjónsson, Stefán Jón Hafstein, Sigrún Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Inga Sólveig, Silja Aðalsteinsdóttir og Halla Tómasdóttir forseti íslands segja okkur frá sínum Bubba – Bubbi og ég - Bubbi og við.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.