Nú fórum við Svenni út fyrir þægindarammann okkar og tókum enskuna á þetta í þessum þætti. Ástæðan er sú að við ræddum um karlagrúbbuna karlmennskuspjallið á Facebook við Dr Shamender Talwar félagssálfræðing en hann er iðulega fenginn til að ræða sálræn og félagsleg málefni hjá BBC í Bretlandi og er stofnandi TUFF hjálparstarfsins sem hefur það að leiðarljósi að sameina trú, menningu og kynþætti og byggja betri veröld. Við spurðum hann út í það hvað væri sálrænt að hjá mönnum sem leyfa sér niðrandi orðbragð af því tagi sem notað er í þessari grúbbu og í lokuðum grúbbum og kommentakerfum samfélagsmiðlanna. Áhugavert viðtal.Framleiðandi- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Volume

Þáttastjórn- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Linda Baldvins

Upptaka - Volume studio 

Hafið samband mail:  [email protected]

Instagram: https://www.instagram.com/180medsvenna/

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Linda & Svenni. Innehållet i podden är skapat av Linda & Svenni och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.