Kjartan Örn Sigurðsson kaupsýslumaður fjallar hér um bókina Ríki pabbi, fátæki pabbi (Rich Dad Poor Dad) sem kom út árið 1997 en sú bók hefur verið ein mest selda bók um fjármál einstaklinga síðan hún kom út.  Hann segir bókina vera fyrir alla þá sem vilja skilja grundvallaratriði fjármála og hefur hann gefið fjölmörgum þessa bók.   Kjartan segir bókina í grundvallaratriðum fjalla um hvernig  efnað fólk vinnur ekki fyrir peningum heldur lætur peninga vinna fyrir sig.  Kjartan heldur úti hlaðvarpinu Firmað ritar ásamt Kolbeini Marteinssyni þar sem þeir ræða um bækur sem tengjast viðskiptum, árangri og markmiðum.Bókin kom út á íslensku árið 2001 undir heitinu Ríki pabbi fátæki pabbi og er hægt að nálgast hana á bókasöfnum. Bókina má einnig finna sem hljóð- eða rafbók mjög víða. Kjartan mælir einnig með þessum bókum fyrir alla þá sem vilja fræðast meira um fjármál og rekstur:   Raving Fans eftir Ken Blanchard  The intelligent investor eftir Benjamin GrahamThe Beermat Entrepreneur eftir Mike Southon og Chris WestInfluence, the psychology of persuasion eftir Robert B. CialdiniThe Way of the Superior Man eftir David DeidaMade in America eftir Sam Walton
Umsjón: Júlí Heiðar HalldórssonÞessi þáttur er framleiddur af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. 

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Umboðsmaður skuldara . Innehållet i podden är skapat av Umboðsmaður skuldara och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.