Pawel Bartozek fæddist í Póllandi og flutti til Íslands 8 ára gamall. Hann er stærðfræðingur sem hefur látið samfélagsmál til sín taka. En hann hefur ritað pistla á vefinn í fjölmiðla reglulega undanfarin 20 ár. Pawel er jafnframt borgarfulltrúi. Í þessu viðtali ræðir Pawel um æsku sína í Póllandi og kommúnismann sem þar var yfir öllu. Vandamál þar var ekki skortur á peningunum heldur skortur á vörum. Einnig fáum við Pawel til að ræða líkindi og happdrætti. Borgar sig t.d að taka þátt í Lottó eða öðrum happdrættum?
Vissir þú að líkur á að vinna í Lottó eru 1 á móti 680.000.
Ef þú spilar Lottó t.d vikulega í 50 ár þá eru líkurnar orðnar um helmingur.
Þeir sem spila mikið auka að sjálfsögðu líkur sínar.
Ef þú spilar fyrir 25 þúsund kr. á viku í 50 ár þá fara í þetta 60 milljónir kr.
Hvenær á maður að taka þátt?
Pawel segir betra að taka þátt þegar pottarnir eru tvöfaldir eða þrefaldir.
Fólk áttar sig á þessu því fleiri taki þátt þegar pottarnir eru stærri.
Af hverju er fólk frekar til í að taka þátt í happdrætti en að kaupa hlutabréf.
Líkindi og hvernig við metum þau.
Svindl í happdrættum.
Hvernig Pawel nálgast sjálfur fjármál.
Þetta og margt fleira um líkindi og happdrætti í þessu áhugaverða viðtali.
Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson.Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Umboðsmaður skuldara . Innehållet i podden är skapat av Umboðsmaður skuldara och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.