Í þessum þætti setjast þrjár þriggja barna mæður niður til að ræða hvernig lífið breyttist við að eignast þriðja barn. Það voru þær Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Svava Margrét Sigurðardóttir sem ræddu málin.Hugmyndin að þættinum var í grunninn sú að ræða hvernig nálgun að uppeldi breytist við að eignast þriðja barn eftir hafa tileinkað sér virðingarríkar uppeldisaðferðir og vera svo „RIE frá fyrsta degi.“ Og hvernig lítur það út þegar það er í afar mörg horn að líta? Verkefnið að koma þriggja barna mæðrum saman í herbergi til að ná að taka upp þátt reyndist þrautinni þyngri – en tókst!Úr varð yndislegt spjall þriggja mæðra um hvernig lífið breyttist eftir þriðja barn með ólík fjölskyldumynstur og samband systkina við komu þriðja barns.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör medvitadirforeldrar. Innehållet i podden är skapat av medvitadirforeldrar och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.