Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Nærgætni í samskiptum við veika -Helga Rakel Rafnsdóttir og tölum um tilfinningar-Bergið Headspace Diljá Ámundardóttir

Dela

MANNLEGI ÞÁTTURINN FIMMTUDAGUR 13.JÚNÍ

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR

Hvernig á að ræða MND við fólk sem greinist með þennan taugahrörnunarsjúkdóm og aðstandendur þeirra og hvaða byltingarkenndu lyfjameðferðir eru nú í boði? Þetta og fleira verður rætt á málþingi sem haldið verður í tilefni af alþjóðadegi MND sjúkdómsins þann 21. júní næstkomandi. HELGA RAKEL RAFNSDÓTTIR kvikmyndagerðarkona kom til okkar en hún greindist með sjúkdóminn fyrir rúmum þremur árum. Hún sagði okkur frá þeim miklu breytingum sem hún hefur upplifað eftir að hún fékk loksins leyfi fyrir því að taka inn MND- lyfið TOFERSEN sem hefur gjörbreytt líðan hennar og styrk á allan hátt.

Bergið - Headspace - stuðnings og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri hefur ýtt úr vör átakinu Tölum um tilfinningar. Forsvarsmenn Bergsins vilja vekja athygli á því að ungmenni frá 12-25 ára geta leitað þangað og fengið fría ráðgjöf og sálfræðiþjónustu án þess að fá tilvísun frá heimilislækni. Stjórnarkona úr BerginuDiljá Mist Ámundardóttir sálgætir kom til okkar og ræddi um mikilvægi þess að geta rætt tilfinningar sínar og vanlíðan í traustu umhverfi, því ekkert vandamál sé of stórt eða of lítið.

Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-13

CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins.

Bjarni Arason - Allur lurkum laminn.

Byrd, Charlie, Deppenschmidt, Buddy, Betts, Keeter, Byrd, Gene, Reichenbach, Bill, Getz, Stan - Desafinado.

Mugison - Stingum af.

CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.