Markús Þórhallsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur, ritstjóra, um innihald vorheftis Sögu 2021. Saga - tímarit Sögufélags kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Auk Kristínar Svövu ritstýrir Vilhelm Vilhelmsson Sögu. Þetta fyrra hefti 2021 er óvenju þykkt og í því eru fjórar ritrýndar greinar, 14 ritdómar, svar við ritdóm og ein ritfregn. 

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Sögufélag. Innehållet i podden är skapat av Sögufélag och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.